02. janúar, 2008
Eignarhaldsfélagið Akur sem KEA á 50% eignarhlut í hefur selt öll hlutabréf sín í hugbúnaðarfyrirtækinu Stefnu. Kaupendur eru starfsmenn auk annarra fjárfesta. Akur keypti félagið fyrir um 2 árum síðan og hefur rekstur félagsins breyst mikið til batnaðar síðan þá. Stefna er sérhæft hugbúnaðarfyrirtæki með megináherslu á netlausnir s.s. vefsíðugerð.
19. desember, 2007
Í samræmi við hluthafasamkomlag frá árinu 2004 milli Búsældar og KEA hefur verið gengið frá kaupum Búsældar á öllu hlutafé KEA í Norðlenska matborðinu ehf. eða 45,5% eignarhlut.
17. desember, 2007
KEA hefur fært Hjálparstarfi kirkjunnar 70 matarpoka, sem verða afhentir skjólstæðingum Hjálparstarfsins núna í aðdraganda jólanna. Þetta er fjórða árið í röð sem KEA réttir Hjálparstarfi kirkjunnar hjálparhönd með þessum hætti, en í hverjum matarpoka er KEA-hamborgarhryggur frá Norðlenska og meðlæti.
04. desember, 2007
Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhenti í dag styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA. Að þessu sinni hlutu 26 einstaklingar og félagasamtök styrki úr sjóðnum, samtals að upphæð 4,4 milljónir króna.
30. október, 2007
Á undanförnum vikum hafa fimm nýir starfsmenn verið ráðnir til starfa hjá Saga Capital fjárfestingabanka. Alls eru 35 manns starfandi hjá bankanum nú en hann tók til starfa fyrir um hálfu ári . Eins og kunnugt er eru höfuðstöðvar bankans á Akureyri í Gamla barnaskólanum Hafnarstræti 53 en útibú í Reykjavík í Þóroddstöðum við Bústaðaveg.
24. október, 2007
KEA auglýsir eftir styrkumsóknum úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins. Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til tveggja flokka:
01. október, 2007
KEA og Íþróttafélagið Þór skrifuðu nýverið undir auglýsingar- og styrktarsamning til eins árs. Samningurinn nær til allrar starfssemi félagsins og er þetta í fyrsta skipti sem slíkur samningur er gerður.
19. september, 2007
Fasteignafélagið City Center Properties, sem er að stærstum hluta í íslenskri eigu, hefur keypt átta stórar fasteignir í Noregi af norska fasteignafélaginu BSA Kontoreiendom. Um er að ræða sex skrifstofubyggingar og tvær byggingar sem hýsa bæði skrifstofur og vörugeymslur, alls 67 þúsund fermetrar. Sjö bygginganna eru í Osló og ein í Bergen.
18. september, 2007
Í júní síðastliðnum sendi KEA frá sér margmiðlunardisk sem hefur að geyma 120 ára sögu félagsins í máli og myndum. Diskurinn var þá sendur á heimili allra félagsmanna KEA og afhentur Minjasafninu á Akureyri, Iðnaðarsafninu, skólum og öðrum söfnum á svæðinu.
Nú hefur efni disksins verið gert aðgengilegt hér í gegnum heimasíðu félagsins. Hægt er að ferðast um tímaás og skoða, meðal annars, ljósmyndir, upplýsingar um fyrirtæki, deildir og vörur KEA, hápunkta tiltekinna tímabila og lifandi myndefni.
17. september, 2007
Akureyrarhlaup KEA fór fram á laugardaginn og alls voru þátttakendur í kringum 250. Mikil stemming var á vellinum þegar Jónsi stjórnaði upphitun og tók lagið. Eftir hlaupin buðu svo Goði, Vífilfell og Greifinn hlaupurum í grill og fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna komu í hlut heppina þátttakenda. Boðið var upp á fjórar vegalengdir, 3 og 5 km. hlaup án tímatöku og 10 km. og hálft maraþon með tímatöku.