Eignir City Center Properties eru metnar á, á annan tug milljarða íslenskra króna og með kaupunum hefur félagið skipað sér í hóp 20 stærstu fasteignafyrirtækja Noregs.
Fjögur félög eiga hlut í fasteignafélaginu City Center Properties, þar af þrjú í eigu Íslendinga; Isthar, félag í eigu Róberts Melax sem á 40% eignarhlut; Saga Capital Fjárfestingarbanki sem á 20%; og KEA sem á 10%. Að auki á norska félagið Auris Holdings 30% eignarhlut. Tveir bankar; Glitnir og Bnbank í Osló fjármögnuðu viðskiptin.
David Ball, stjórnarformaður City Center Properties segir að félagið ætli að styrkja stöðu sína á fasteignamarkaðinum í Evrópu á næstunni. ,,Við stefnum að því að tvöfalda eignir félagsins á næstu tveimur árum og erum að skoða fasteignir víðs vegar um Evrópu,” segir David.