31. mars, 2005
Fólk virðist almennt vera ágætlega sátt við þær breytingar sem hafa orðið á Kaupfélagi Eyfirðinga svf. á undanförnum árum, ef marka má niðurstöður viðhorfskönnunar sem Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri vann fyrir KEA. Mikill meirihluti þátttakenda telur að breytingarnar á KEA á undanförnum árum Fólk virðist almennt vera ágætlega sátt við þær breytingar sem hafa orðið á Kaupfélagi Eyfirðinga svf. á undanförnum árum, ef marka má niðurstöður viðhorfskönnunar sem Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri vann fyrir KEA. Mikill meirihluti þátttakenda telur að breytingarnar á KEA á undanförnum árum hafi verið jákvæðar um fjórðungur aðspurðra telur þær hafa verið neikvæðar. Áberandi er jákvæðni í garð þessara breytinga á lægri aldursstigum.
Í úrtaki könnunarinnar voru 1227 manns á aldrinum 18 til 80 ára í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu. Svarhlutfall í könnuninni var 73%. Um þriðjungur þátttakenda í könnunni var félagsmenn í KEA.
Þegar þátttakendur voru beðnir að nefna það jákvæðasta sem KEA hafi staðið fyrir upp á síðkastið nefndu flestir atvinnusköpun og vísuðu þar meðal annars til aðkomu KEA að endurreisn Norðlenska. Margir nefndu og styrkveitingar í þessu sambandi og þá sérstaklega styrki til menningarmála og íþróttastyrki til annað hvort íþróttagreina eða afreksfólks.
Ennfremur nefndu margir af þeim sem svöruðu þessari spurningu samgöngumálin bæði aðild KEA að Vaðlaheiðargöngum og hálendisvegi svokölluðum Norðurvegi.
Algengasta svarið við spurningunni um það neikvæðasta í starfsemi KEA á síðustu misserum var að KEA hafi dregið sig út úr atvinnustarfsemi m.a. hætt rekstri matvöruverslana. Þá var nefndur sem neikvæður þáttur aðkoma KEA að KÞ og sömuleiðis var salan á Kaldbaki nefnd.
Í könnuninni kom fram með afgerandi hætti sú afstaða að vel hafi tekist til með fjárfestingar KEA svf. á félagssvæðinu og í staðbundnum verkefnum. Um 60% telja fjárfestingarnar hafa tekist mjög eða frekar vel. Sem dæmi um vel heppaða fjárfestingu voru Jarðböðin við Mývatn nefnd og sama má segja um aðkomu KEA að Greiðri leið - undirbúningsfélagi vegna Vaðlaheiðarganga. Hins vegar var nefnt að illa hafi tekist til með söluna á Útgerðarfélagi Akureyringa, en sem kunnugt er var ekki fallist á hugmyndir KEA um kaup á félaginu snemma á árinu 2004. Margir nefndu nauðsyn á að KEA léti til sín taka í nýsköpun í atvinnulífinu, aðrir nefndu að KEA ætti að hlúa betur að landbúnaði á svæðinu og einnig voru byggða- og menntamál nefnd.
Fram kom jákvæð afstaða þátttakenda til samstarfs KEA við Háskólann á Akureyri, en KEA styrkir á ári hverju verkefni sem tengjast háskólanum. Einnig kom fram ánægja með aðild KEA að Vaxtarsamningi Eyjafjarðar.
Í það heila töldu þátttakendur sig hafa frekar jákvæða tilfinningu fyrir KEA afstaðan var jákvæðust í aldurshópnum 36-45 ára.