18. desember, 2002
Eitthundrað og sex umsóknir eða erindi um fjárhagslegan stuðning bárust Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA svf., en umsóknarfrestur rann út 1. desember sl. Fagráð hefur unnið að því að fara yfir umsóknir og meta þær og álit þess verður lagt fyrir stjórnarfund KEA sem er boðaður á morgun, 19. deseEitthundrað og sex umsóknir eða erindi um fjárhagslegan stuðning bárust Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA svf., en umsóknarfrestur rann út 1. desember sl. Fagráð hefur unnið að því að fara yfir umsóknir og meta þær og álit þess verður lagt fyrir stjórnarfund KEA sem er boðaður á morgun, 19. desember. Gert er ráð fyrir að 4 milljónir króna komi nú til úthlutunar. Stefnt er að því að tilkynna um styrkhafa nk. laugardag, 21. desember . Nánar verður kveðið á um stað og stund hér á heimasíðunni.