Styrkir úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA svf.

Kaupfélag Eyfirðinga svf. auglýsir eftir styrkumsóknum úr Menningar- og viðurkenningarsjóði félagsins. Þann 20. desember 2002 verður úthlutað styrkjum til: A. Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA. Um getur verið að ræða málefni á Kaupfélag Eyfirðinga svf. auglýsir eftir styrkumsóknum úr Menningar- og viðurkenningarsjóði félagsins. Þann 20. desember 2002 verður úthlutað styrkjum til: A. Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og íþrótta og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu. B. Ungra afreksmanna á sviði mennta, lista, íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök afrek t.d. á sviði björgunarmála. Í þessum síðari flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA. Þær breytingar hafa orðið að nú eru styrkir veittir tvisvar á ári úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA svf. – annars vegar í tengslum við aðalfund félagsins og hins vegar á tímabilinu október-desember. Gert er ráð fyrir að sjóðurinn úthluti árlega á bilinu 12-15 milljónum króna til menningarverkefna. Umsóknir um styrki og framlög úr sjóðnum skulu berast skrifstofu félagsins á sérstökum eyðublöðum, sem þar eru til afhendingar. Einnig er unnt að nálgast umsóknareyðublað hérna á heimasíðu KEA. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2002.