Styrkir afhentir á Fiðlaranum

Margir af styrkþegum eða fulltrúar þeirra sem fengu 100 þúsund króna styrk úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA svf. tóku við styrkjunum við athöfn á Fiðlaranum á Akureyri í dag. Styrkina afhentu Benedikt Sigurðarson, formaður stjórnar KEA, og Andri Teitsson, framkvæmdastjóri. Eftirtaldir nítjMargir af styrkþegum eða fulltrúar þeirra sem fengu 100 þúsund króna styrk úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA svf. tóku við styrkjunum við athöfn á Fiðlaranum á Akureyri í dag. Styrkina afhentu Benedikt Sigurðarson, formaður stjórnar KEA, og Andri Teitsson, framkvæmdastjóri. Eftirtaldir nítján aðilar hlutu 100 þúsund króna styrki að þessu sinni til margvíslegra menningarverkefna: Ferðafélagið Rjúkandi - félagsskapur geðfatlaðra Norðanvindur - ullarvinnuhópur "Þrettán plús þrjár" - sýning í Lystagarðinum á Akureyri Hlynur Hallsson, myndlistarmaður - myndlistarsýningar í Nýlistasafninu og Ketilhúsinu Rósa Kristín Júlíusdóttir, myndlistarmaður - þátttaka í sýningunni "List án landamæra" Sigurður Friðleifsson - gerð sögu- og menningartalhólfs fyrir Eyjafjarðarsvæðið Samgönguminjasafnið í Kinn - stuðningur við uppbyggingu safnsins Pétur Bjarni Gíslason - stuðningur við byggingu húss fyrir uppstoppaða fugla Hollvinir Hraunsréttar í Aðaldal - til áframhaldandi uppbyggingar Hraunsréttar Strandaakademían - verkefnið "Draumur á nýrri öld" Þorgeirskirkja í Ljósavatnsskarði - til kaupa á píanói til tónlistarflutnings í kirkjunni In memoriam - til að ljúka við legstaðaskráningu í Eyjafjarðarprófastdæmi Björn Steinar Sólbergsson, organisti - útgáfa á geisladiski með öllum orgelverkum Páls Ísólfssonar í samvinnu við Skálholtsútgáfuna Þjóðlagahátíð á Siglufirði - stuðningur við framkvæmd fjórðu þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði sumarið 2004 Berjadagar í Ólafsfirði - stuðningur við tónlistarhátíðina "Berjadagar í Ólafsfirði 2004" Skíðafélag Siglufjarðar - stuðningur við nýja skíðalyftu félagsins í Siglufjarðarskarði Dagbjört Brynja Harðardóttir - stuðningur við verkefni v/einhverfs drengs Samstarfsaðilar v/hreyfiþroska leikskólabarna - þróunarverkefni um snemmtæka íhlutun í hreyfiþroska Félagsskapurinn Fýll - stuðningur við verkefnið "Aldrei - Nei - Never" - sýning í þremur hlutum - 5 myndlistarmenn í Berlín, 5 í Reykjavík og 5 á Akureyri