Stjórn KEA ítrekar fyrri samþykkt um opinber verkefni

Á fundi stjórnar KEA í gær, 6 júní, var samþykkt eftirfarandi ályktun: "Fagna ber ákvörðun um staðsetningu Landbúnaðarstofnunar á Selfossi sem staðfestir afstöðu ríkisstjórnarinnar til staðsetningar opinberra verkefna. Stjórn KEA ítrekar fyrri samþykktir varðandi þátttöku félagsins í undirbúningiÁ fundi stjórnar KEA í gær, 6 júní, var samþykkt eftirfarandi ályktun: "Fagna ber ákvörðun um staðsetningu Landbúnaðarstofnunar á Selfossi sem staðfestir afstöðu ríkisstjórnarinnar til staðsetningar opinberra verkefna. Stjórn KEA ítrekar fyrri samþykktir varðandi þátttöku félagsins í undirbúningi að flutningi verkefna ríkisins til félagssvæðis KEA. Stjórnin væntir góðs samstarfs við ríkisstjórn og ráðherra um flutning verkefna og stofnana og hefur m.a. óskað eftir fundi með iðnaðar- og viðskiptaráðherra þar sem möguleg staðsetning Neytendastofu á Akureyri verður tekin til umræðu."