Þannig hefur KEA, allt frá árinu 1949, stuðlað að varðveislu sögunnar hér á svæðinu en hin síðari ár hefur Iðnaðarsafnið einnig notið mikils stuðnings KEA enda eru þar fjölmargir munir sem tengjast sögu félagsins. Efnið á disknum verður aðgengilegt gestum bæði á Minjasafninu og Iðnaðarsafninu.
Fyrirtækið Gagarín í Reykjavík hefur unnið margmiðlunardiskinn, en þar er blandað saman myndvinnslu og textagerð með nýjustu tækni. Óskar Þór Halldórsson vann handritið, en myndefni kemur frá fjölmörgum aðilum m.a. frá Minjasafninu, Ljósmyndasafni Reykjavíkur og fjölmörgum einkaaðilum.
Í kjölfar breytinga á starfsemi KEA upp úr aldamótunum 2000 var Starfsmannafélagi KEA (SKE) slitið árið 2003 og jafnframt undirritaður þríhliða samningur milli Kaldbaks, SKE og KEA um að peningagjöf SKE skyldi varið til þess að minnast starfa starfsmanna KEA og SKE. Þessari peningagjöf hefur verið varið til þess að kosta gerð þessa margmiðlunardisks, sem ber einfaldlega nafnið “KEA 1886-2006 – saga KEA í máli og myndum”.
Diskurinn innheldur margmiðlunarefni sem er aðgengilegt í gegnum tölvu (PC-CD-ROM) en ekki í gegnum hefðbundna DVD spilara. Auk þess er stefnt að því að efnið verði aðgengilegt á vef félagsins í haust.