Á árinu 2016 var styrkveitingarumgjörð Menningar- og viðurkenningarsjóðs KEA breytt. Í því fólst m.a. að Háskólasjóður KEA var lagður niður sem slíkur en í hans stað kemur nýr styrkjaflokkur sem heyrir undir Menningar- og viðurkenningarsjóð KEA og tekur á rannsókna- og menntastyrkjum. Um er að ræða styrki til rannsóknarverkefna við menntastofnanir á félagssvæði KEA sem og stuðning við ýmis mennta-, heilbrigðis- og rannsóknartengd verkefni. Í því samhengi er m.a. horft til samstarfsverkefna mennta- og rannsóknarstofnana sem og verkefni er stuðla að bættum aðbúnaði og tækjakaupum sem efla innviði stofnana á félagssvæðinu.
Bréf hafa verið send á mennta- og heilbrigðisstofnanir á svæðinu þar sem forsvarsmenn þeirra eru hvattir til að kynna þennan nýja flokk fyrir starfsfólki sínu.
Umsóknarfrestur er til 6. nóvember n.k.
Fyrirhugað er að úthluta úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA um mánaðarmótin nóv/des.
Lokað hefur verið fyrir umsóknir í Menningar- og viðurkenningarsjóð KEA