Menningar- og viðurkenningasjóður KEA veitir 28 styrki

Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga staðfesti á fundi sínum í gær úthlutun úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA, en þetta er síðari úthlutun úr sjóðnum á þessu ári. Að þessu sinni tók úthlutunin til tveggja þátta, samkvæmt reglugerð um sjóðinn: A. Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mStjórn Kaupfélags Eyfirðinga staðfesti á fundi sínum í gær úthlutun úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA, en þetta er síðari úthlutun úr sjóðnum á þessu ári. Að þessu sinni tók úthlutunin til tveggja þátta, samkvæmt reglugerð um sjóðinn: A. Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og íþrótta og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu. B. Ungra afreksmanna á sviði mennta, lista, íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök afrek t.d. á sviði björgunarmála. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA. Í A-flokki voru til úthlutunar 2 milljónir króna og koma 100 þúsund krónur í hlut 20 styrkþega. Í B-flokki var úthlutað 1.980.000 kr til átta einstaklinga. Í hlut fimm þeirra koma 300 þúsund krónur og 160 þúsund krónur í hlut þriggja. Styrkþegar í A-flokki – almennar umsóknir – 100 þúsund krónur í hlut hvers: Ungmennafélagið Efling í Reykjadal – vegna uppfærslu á nýju íslensku leikriti – Landsmótinu eftir Jóhannes Sigurjónsson og Hörð Benónýsson. Tónvinafélag Laugaborgar í Eyjafjarðarsveit – vegna kynningar, heimasíðugerðar, tónleika o.fl. Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanóleikari í Dalvíkurbyggð – til útgáfu á geisladiski með einleiksverkum á píanó. Stúlknakór Akureyrarkirkju – vegna tónleikaferðar til Svíþjóðar. Menningar- og listvinafélagið Beinlaus biti í Ólafsfirði – vegna útgáfu á nýjum geisladiski með hljómsveitinni Roðlaust og beinlaust ÍsMedia/Kristlaug Sigurðardóttir – vegna framleiðslu á kvikmynd í fullri lengd sem gerist á Akureyri. Fiskidagurinn mikli á Dalvík – árleg hátíð í ágúst á Dalvík sem hefur fest sig í sessi sem ein af fjölsóttustu hátíðum ársins á landinu. Sproti ehf. á Þverá í Skíðadal – til vinnslu menningar- og fræðsluverkefnis fyrir börn. Yean Fee Quay, myndlistarmaður á Akureyri – til að þróa tölvutækt efni vegna sýningar í Listasafninu á Akureyri. Nonnahús á Akureyri – til að hanna, prenta og þýða upplýsingabækling Ólafur Sveinsson, myndlistarmaður á Akureyri – vegna myndlistarsýningar. Nemendafélag Myndlistaskólans á Akureyri – vegna uppákoma á aðventunni 2003 í miðbæ Akureyrar. Erlingur Sigurðarson á Akureyri – til að efla ljóðlist. Smámunasafn Sverrir Hermannssonar í Eyjafjarðarsveit – vegna skráningar muna safnsins. Listasafnið á Akureyri – vegna sýningarinnar “Konur allra landa” – 177 verk 177 kvenna. Sundfélagið Óðinn á Akureyri – til markvissrar sundþjálfunar fatlaðra barna og unglinga. Minningarsjóður Heimahlynningar á Akureyri – til kaupa á búnaði fyrir sjúklinga. Alþjóðastofan á Akureyri – vegna menntasmiðju fyrir konur af erlendum uppruna. Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar ehf. – til gerðar sögukorts fyrir Norðurland eystra. Þorsteinn Þorsteinsson Akureyri – til könnunar á fuglífi í Hrísey. Styrkþegar í B-flokki – ungt afreksfólk: Vilhjálmur I. Sigurðarson, trompetleikari frá Gröf 1 í Eyjafjarðarsveit – stundar nám í trompetleik í Osló í Noregi – 300 þúsund krónur. Elsa Guðrún Jónsdóttir, gönguskíðakona frá Ólafsfirði – stundar nám í skíðamenntaskóla í Noregi og leggur þar stund á íþrótt sína – 300 þúsund krónur. Pálmar Pétursson, handknattleiksmaður frá Húsavík – unglingalandsliðsmaður í sinni íþrótt – 300 þúsund krónur. Rut Sigurðardóttir, taekwondokona á Akureyri – vegna kostnaðar við æfingabúðir – 300 þúsund krónur. Einar Guðni Valentine, íshokkímaður í Skautafélagi Akureyrar – á sæti í tveimur landsliðum Íslands í íshokkí – undir 18 og 20 ára aldri. Framundan eru keppnisferðir Einars Guðna með þessum landsliðum erlendis – 300 þúsund krónur. Kristján Uni Óskarsson, skíðamaður í alpagreinum frá Ólafsfirði – einn af efnilegustu skíðamönnum landsins. Stundar nám í skíðamenntaskóla í Noregi og fær þar tækifæri til þess að leggja stund á íþrótt sína. Stefnir á þátttöku í Vetrarólympíuleikunum árið 2006 – 160 þúsund krónur. Margrét Ragna Bjarnadóttir, júdókona úr Eyjafjarðarsveit. Leggur alúð við sína íþrótt og hefur nú þegar náð langt – 160 þúsund krónur. Helga Margrét Clarke, listhlaupari á skautum frá Akureyri – er í allra fremstu röð hér á landi í sinni íþróttagrein. Aflar sér menntunar og reynslu í þjálfun í listhlaupi á skautum – 160 þúsund krónur. Samtals úthlutar Menningar- og viðurkenningasjóður KEA því 28 styrkjum að þessu sinni og verða þeir afhentir á veitingastaðnum Fiðlaranum á Akureyri, fimmtu hæð, þriðjudaginn 30. desember nk. kl. 16.