Menningar- og viðurkenningasjóður KEA auglýsir eftir styrkumsóknum

1. Menningar- og samfélagsverkefni.

Um er að ræða styrki til einstaklinga, þar á meðal ungs efnilegs fólks, félaga eða hópa sem skara fram úr eða vinna að mikilvægum mennta- og menningarmálum á félagssvæðinu. 

2. Íþrótta- og æskulýðsstyrkir

a. Styrkir til ungra afreksmanna á sviði íþrótta. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.

b. Styrkir til íþrótta- og æskulýðsfélaga. Í þessum flokki er verið að styðja almennt við íþrótta- og æskulýðsstarf klúbba og félaga sem halda úti metnaðarfullu starfi.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglugerð sjóðsins.

Nauðsynlegt er að fylla út umsóknareyðublöð sem nálgast má hér að neðan og skal þeim skilað rafrænt í síðasta lagi föstudaginn 1. nóvember 2024.

Úthlutun úr sjóðnum fer fram þann 2. desember nk.

Umsóknareyðublöð:

Menningar- og samfélagsverkefni

Íþrótta- og æskulýðsfélög | KEA svf.

Ungir afreksmenn