Margar umsóknir um styrki úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA svf.

Fjölmargar umsóknir bárust um styrki úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA svf., en umsóknarfrestur rann út 1. desember sl. Á næstu dögum verður farið í gegnum umsóknir og þær metnar. Síðan mun stjórn KEA taka endanlega afstöðu til styrkumsókna á boðuðum stjórnarfundi 19. desember. Stefnt er að þFjölmargar umsóknir bárust um styrki úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA svf., en umsóknarfrestur rann út 1. desember sl. Á næstu dögum verður farið í gegnum umsóknir og þær metnar. Síðan mun stjórn KEA taka endanlega afstöðu til styrkumsókna á boðuðum stjórnarfundi 19. desember. Stefnt er að því að tilkynna um úthlutun úr sjóðnum laugardaginn 21. desember nk.