31. ágúst, 2004
Á fundi stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga svf. í dag, þriðjudaginn 31. ágúst, var fjallað um og samþykkt 6 mánaða uppgjör félagsins 30. júní 2004. Löggiltur endurskoðandi félagsins hefur kannað uppgjörið.
Hagnaður varð af rekstri félagsins á tímabilinu og nam hann 130,7 milljónum króna að teknu tillitÁ fundi stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga svf. í dag, þriðjudaginn 31. ágúst, var fjallað um og samþykkt 6 mánaða uppgjör félagsins 30. júní 2004. Löggiltur endurskoðandi félagsins hefur kannað uppgjörið.
Hagnaður varð af rekstri félagsins á tímabilinu og nam hann 130,7 milljónum króna að teknu tilliti til skatta. Veltufé frá rekstri nam 128,8 milljónum króna.
Rekstrartekjur KEA svf. á fyrri árshelmingi nam röskum 176 milljónum króna, sem er tæplega 170 milljóna króna hækkun í samanburði við sama tímabil í fyrra. Rekstrargjöld á tímabilinu námu tæpum 23 milljónum króna, sem er um fjögurra milljóna króna lækkun frá fyrra ári. Veittir styrkir á tímabilinu námu röskum 14 milljónum króna og því var hagnaður félagsins fyrir skatta 139,4 milljónir króna. Að teknu tilliiti til tekju- og eignarskatts og sérstakrar gjaldfærslu að upphæð kr. 7 milljónir nam hagnaður félagsins á fyrri árshelmingi því 130,673 milljónum króna.
Í tilkynningu KEA svf. til Kauphallar Íslands í dag kemur eftirfarandi fram:
"Heildareignir félagsins nema 2.638 millj. kr. og skuldir 428 millj. kr. Bókfært eigið fé er því 2.210 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 84%. Kaldbakur hf. hefur tekið að sér að greiða langtímaskuldir félagsins að eftirstöðvum 207,8 millj. kr. í lok tímabilsins, þar af eru 85,9 millj. kr. færðar sem næsta árs afborganir meðal skammtímaskulda. Í reikningum félagsins er því myndaður mótreikningur við umræddar langtímaskuldir á meðal langtíma- og skammtímakrafna, sem sýnir þá kröfu sem félagið á á hendur Kaldbaki hf.
Kaupfélagið á hluti í fjárfestingarfélaginu Kaldbaki hf. að nafnverði kr. 473.946.912 eða 27,02% hlut og nemur bókfært verð hlutarins kr. 1.244.112.435. Markaðsvirði eignarhlutans í Kaldbaki var í lok tímabilsins 2.026,1 millj. kr. hærra en bókfært verð hans.
Kaupfélagið á 170 millj. kr. hlut í Norðlenska matborðinu ehf. eða 42,5% og er hluturinn bókfærður á nafnverði. Innra virði hlutabréfa Kaupfélagsins í Norðlenska matborðinu var 97,3 millj. kr. lægra en bókfært verð þeirra í lok tímabilsins.
Félagið hefur gefið út skuldabréf sem skráð eru í Kauphöll Íslands og er þessi fréttatilkynning gefin út í samræmi við reglur um upplýsingaskyldu útgefenda skráðra skuldabréfa.
Kaupfélag Eyfirðinga svf. hefur ekki lengur með höndum eiginlegan atvinnurekstur heldur starfar sem byggðafestufélag. Tilgangur félagsins er að vinna að hagsmunum félagsmanna og efla búsetu á félagssvæðinu, sem nær yfir Eyjafjörð og Þingeyjarsýslur. Þeim tilgangi sinnir félagið einkum með að:
1. Hafa með höndum umsjón og eignarhald á hlutafé KEA í hlutafélögum og öðrum félögum og taka þátt í stjórnun þeirra.
2. Ávaxta eignir KEA og ráðstafa hæfilegum arði af þeim til félagsmanna sinna og til eflingar atvinnu og mannlífs á félagssvæðinu.
3. Hafa frumkvæði að því að stofna til fjárfestingar og nýsköpunar í atvinnurekstri á félagssvæðinu og kalla eftir samstarfi við opinbera aðila, við fyrirtæki, fjárfesta og einstaklinga í því skyni að efla atvinnulíf.
4. Leita samninga um viðskiptakjör fyrir félagsmenn.
Á tímabilinu veitti Kaupfélagið margvíslega styrki til mennta- og atvinnumála, menningar,- líknar- og æskulýðsstarfsemi að fjárhæð samtals um 14,3 millj. kr. og eru þeir gjaldfærðir í uppgjörinu.
Félagsmenn í Kaupfélagi Eyfirðinga svf. eru á áttunda þúsund talsins og eiga allir jafnan hlut."