Framkvæmdastjóri KEA, Halldór Jóhannsson, hefur skrifað undir styrktarsamninga við Íþróttafélagið Þór og
Knattspyrnufélag Akureyrar (KA).
Um er að ræða heildarsamninga
sem taka til allra deilda félaganna og gilda þeir til eins árs. KEA hefur lengi stutt vel við íþróttafélögin en á
samningstímanum verður KEA einn af aðalstyrktaraðilum félaganna.
Sigfús Helgason skrifaði undir samninginn fyrir hönd Þórs og Stefán Gunnlaugsson fyrir hönd KA. Þeir sögðu báðir þegar
undirritun fór fram að þessir samningar væru afar þýðingarmiklir fyrir uppbyggingu og starf félaganna en virkir iðkendur beggja félaganna eru
hátt í tvö þúsund talsins.
Halldór segir þetta vera framhald á þeim stuðningi sem KEA hefur veitt þessum íþróttafélögum hin síðari ár.
Við leggjum metnað okkar í að skila stórum hluta af afkomu okkar út í samfélagið til stuðnings góðra verka og til efla
íþrótta- og æskulýðsstarf á félagssvæði KEA.