Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhenti í gær Hjálparstarfi kirkjunnar á Akureyri 500 þúsund króna peningagjöf
sem ætluð er til kaupa á matvælum til styrktar skjólstæðingum hjálparstarfsins.
Halldór segir að með þessari gjöf vilji KEA létta undir með því fólki sem þurfi á aðstoð að halda fyrir jólin,
en þetta er
sjöunda árið í röð sem KEA styrkir Hjálparstarfið. Jón Oddgeir Guðmundsson,
sem veitti gjöfinni viðtöku, segir að þörf fyrir aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar sé alltaf að aukast og þetta framlag KEA komi
því sannarlega að góðum notum.
Jón Oddgeir segir að á annað hundrað manns í Eyjafirði og Þingeyjarsveit leiti um þessar mundir eftir aðstoð hjá
Hjálparstarfi kirkjunnar, auk þess hafi stofnunin samband við einstaklinga sem hún telur hjálpar þurfi og bjóði fram aðstoð sína.