Í framhaldi af útgáfu KEA kortsins hófst samstarf á milli KEA og sparisjóðanna á félagssvæði KEA. Sparisjóðirnir
hófu útgáfu á KEA debet- og kreditkortum til félagsmanna og nú hafa aðilar samstarfsins ákveðið að styrkja gott málefni
á svæðinu.
Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, Örn Arnar Óskarsson, yfirmaður BYRS á Akureyri og Guðmundur Lárusson
sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Þingeyinga afhentu Hjálparstarfi kirkjunnar á Akureyri að gjöf hálfa milljón króna sem
ætluð er til kaupa á matvælum til styrktar skjólstæðingum hjálparstarfsins. Með þessari gjöf vilja samstarfsaðilar létta undir
með þeim sem þurfa á aðstoð að halda fyrir jólin.
Jón Oddgeir Guðmundsson, sem veitti gjöfinni viðtöku, segir að þörf fyrir aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar hafi aukist mikið frá
síðasta ári og framlag samstarfsaðila KEA kortsins komi því sannarlega að góðum notum. Jón Oddgeir segir að stofnunin reyni að
liðsinna öllum sem til hennar leiti, auk þess að hafa samband við einstaklinga sem hún telur hjálpar þurfi.