KEA og Norðlenska leggja Hjálparstarfi kirkjunnar lið

Andri Teitsson, framkvæmdastjóri KEA, og Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, afhentu Jóni…
Andri Teitsson, framkvæmdastjóri KEA, og Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, afhentu Jóni Oddgeir Guðmundssyni, starfsmanni Hjálparstarfs kirkjunnar, matarpokana á Akureyri í dag.
Í dag, mánudaginn 20. desember, afhentu forsvarsmenn KEA og Norðlenska, Hjálparstarfi kirkjunnar á Akureyri áttatíu matarpoka, sem verður dreift til skjólstæðinga Hjálparstarfs kirkjunnar í Eyjafirði og á Húsavík núna fyrir jólin. Í hverjum poka er hamborgarhryggur frá Norðlenska ásamt meðlæti. AÍ dag, mánudaginn 20. desember, afhentu forsvarsmenn KEA og Norðlenska, Hjálparstarfi kirkjunnar á Akureyri áttatíu matarpoka, sem verður dreift til skjólstæðinga Hjálparstarfs kirkjunnar í Eyjafirði og á Húsavík núna fyrir jólin. Í hverjum poka er hamborgarhryggur frá Norðlenska ásamt meðlæti. Andri Teitsson, framkvæmdastjóri KEA, og Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, segja að með þessum gjöfum vilji KEA og Norðlenska létta undir með því fólki sem þurfi á aðstoð að halda fyrir jólin. Ingvar Már segir að Norðlenska leggi fleiri félagasamtökum lið á einn eða annan hátt, t.d. Mæðrastyrksnefnd. Jón Oddgeir Guðmundsson, sem veitti matarpokunum viðtöku fyrir hönd Hjálparstarfs kirkjunnar á Akureyri, segir að sem fyrr sé mikil þörf fyrir aðstoð Hjálparstofnunar og þetta framlag KEA og Norðlenska komi því sannarlega í góðar þarfir. Jón Oddgeir segir að um 50 aðilar í Eyjafirði og á Húsavík leiti eftir aðstoð frá Hjálparstofarfi kirkjunnar og til viðbótar muni stofnunin hafa samband við einstaklinga sem hún telur hjálpar þurfi og bjóða fram aðstoð sína.