KEA og Höldur hafa keypt eignarhluti í hópferðabílafyrirtækinu SBA-Norðurleið á Akureyri af Gunnari M. Guðmundssyni framkvæmdastjóra og einum aðaleigenda félagsins. Kaupin fela í sér að KEA og Höldur eignast 5% eignarhlut hvort. Samhliða þessu hafa verið undirritaðir valréttasamningar milli KEA og Gunnars um 15% eignarhlut í SBA-Norðurleið. SBA-Norðurleið er stærsta hópferðabílafyrirtæki utan höfuðborgarsvæðisins og er með um 80 bíla í rekstri og hjá félaginu eru um 85 heilsársstörf.
Gunnar fagnar þessum viðskiptum og kveðst ánægður að fá fjársterka aðila inn í eigendahóp félagsins. Þrátt fyrir fækkun ferðamanna til landsins í ár sjáum við tækifæri á þessum markaði til lengri tíma litið. Ég tel mikilvægt að efla félagið á yfirvegaðan máta í því umhverfi sem nú ríkir og hver veit nema tækifæri til vaxtar skapist í þessum aðstæðum. Við viljum hafa félagið eigendalega sterkt og vel fjármagnað til að standa af okkur sveiflur á markaði og undirbyggja frekari eflingu félagsins til lengri tíma.
Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA hlakkar til samstarfs við aðra eigendur SBA-Norðurleiðar enda höfum við fylgst vel með þessi félagi og rætt við stærsta hluthafa þess í nokkurn tíma. Þetta félag hefur verið rekið farsællega í gegnum tíðina og með þessum kaupum erum við að slást í hóp með reynsluboltum á þessu sviði og markmið okkar er að gera gott fyrirtæki betra og styðja við félagið í að nýta þau vaxtartækifæri sem kunna að bjóðast á næstu mánuðum og misserum.
Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds segir afar ánægjulegt að tengjast SBA-Norðurleið með þessum hætti. Bæði félögin séu með rætur sínar og höfuðstöðvar á Akureyri og hafi í gegnum tíðina unnið saman að markaðssetningu Norðurlands á mörgum sviðum. Aukin samvinna þarna sé bara af hinu góða og muni styrkja rekstur beggja enn frekar og styðja við uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu.