Borðarnir eru 34 cm langir og eru þannig hannaðir að þeir hringa sig um handleggi eða fótleggi. Skemmtileg hönnun sem fellur krökkunum vel í geð.
Í dag, mánudaginn 30. ágúst, var dreift endurskinsborðum til allra barna í fyrsta bekk grunnskóla á Akureyri, sem er gjöf frá Kaupfélagi Eyfirðinga svf. Um er að ræða 34 cm langa borða, sem er auðvelt að smella á annað hvort handleggi eða fótleggi. Í næstu viku verður samskonar borðum dreift til 1. Í dag, mánudaginn 30. ágúst, var dreift endurskinsborðum til allra barna í fyrsta bekk grunnskóla á Akureyri, sem er gjöf frá Kaupfélagi Eyfirðinga svf. Um er að ræða 34 cm langa borða, sem er auðvelt að smella á annað hvort handleggi eða fótleggi. Í næstu viku verður samskonar borðum dreift til 1. bekkinga á öðrum stærri þéttbýlisstöðum á starfssvæði KEA - Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði, Húsavík og Grenivík.
Síðastliðinn laugardag, á Akureyrarvöku, var einnig dreift um þrjúhundruð slíkum borðum í Listasmiðju Öllu í Listagilinu á Akureyri, en KEA styrkti starfsemi listasmiðjunnar á Akureyrarvöku. Borðarnir hurfu eins og dögg fyrir sólu og vöktu mikla eftirtekt og ánægju.