Styrkúhlutun tekur til eftirfarandi flokka:
1. Menningar- og samfélagsverkefni. Um er að ræða styrki til einstaklinga, þar á meðal ungs fólks, félaga eða hópa sem skara fram úr eða vinna að mikilvægum mennta- og menningarmálum á félagssvæðinu. Um er að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu. Fagráð metur umsóknir og gefur þeim einkunn. Í einkunnagjöf fagráðs felst mat á því hvaða umsóknir skulu teljast styrkhæfar.
2. Íþrótta- og æskulýðsstyrkir
a. Styrkir til ungra afreksmanna á sviði íþrótta. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.
b. Styrkir til íþrótta- og æskulýðsfélaga. Í þessum flokki er verið að styðja almennt við íþrótta- og æskulýðsstarf klúbba og félaga sem halda úti metnaðarfullu starfi á sínu nærsvæði.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglugerð sjóðsins.
Nauðsynlegt er að fylla út umsóknareyðublöð sem nálgast má hér að ofan eða á skrifstofunni og skal þeim skilað rafrænt eða á skrifstofu KEA, Glerárgötu 36, á Akureyri fyrir mánudaginn 6. nóvember 2017.
Lokað hefur verið fyrir umsóknir í Menningar- og viðurkenningarsjóð KEA