Húsakynni Bústólpa á Akureyri.
Kaldbakur hf. seldi í dag hlutabréf sín í Bústólpa til Fóðurblöndunnar hf. Eftirfarandi tilkynning frá Kaldbaki birtist á vef Kauphallar Íslands í dag:
"Kaldbakur hf. hefur í dag selt til Fóðurblöndunnar hf. hlutabréf sín í fóður- og áburðarsölufyrirtækinu Bústólpa ehf. en Kaldbakur hf. átti öll hlKaldbakur hf. seldi í dag hlutabréf sín í Bústólpa til Fóðurblöndunnar hf. Eftirfarandi tilkynning frá Kaldbaki birtist á vef Kauphallar Íslands í dag:
"Kaldbakur hf. hefur í dag selt til Fóðurblöndunnar hf. hlutabréf sín í fóður- og áburðarsölufyrirtækinu Bústólpa ehf. en Kaldbakur hf. átti öll hlutabréf í félaginu. Innleystur söluhagnaður Kaldbaks hf. er áætlaður rúmar 144 milljónir króna. Sala þessi er í samræmi við stefnu Kaldbaks hf. að selja hlutabréf sín í minni óskráðum hlutafélögum. Salan á hlutabréfum Kaldbaks hf. í Bústólpa ehf. er gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppnisstofnunar."