Frestur til að sækja um styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA rennur út 7. apríl nk. Styrkjum er úthlutað tvisvar á ári, í tengslum við aðalfund félagsins að vori og aftur í desember. Síðast var úthlutað úr sjóðnum milli jóla og nýárs og nú fer úthlutunin fram í tengslum við aðalfund KEA 29Frestur til að sækja um styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA rennur út 7. apríl nk. Styrkjum er úthlutað tvisvar á ári, í tengslum við aðalfund félagsins að vori og aftur í desember. Síðast var úthlutað úr sjóðnum milli jóla og nýárs og nú fer úthlutunin fram í tengslum við aðalfund KEA 29. apríl nk.
Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til þriggja þátta:
A. Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og íþrótta og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu.
B. Ungra afreksmanna á sviði mennta, lista, íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök afrek t.d. á sviði björgunarmála. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.
C. Þátttökuverkefna á sviði menningarmála á félagssvæði KEA. Fagráð fjallar um umsóknir eða fyrirliggjandi hugmyndir samstarfsaðila og gerir tillögur til stjórnar um val á verkefnum.
Umsóknir um styrki og framlög úr sjóðnum skulu berast skrifstofu KEA að Hafnarstræti 91-95 á Akureyri á sérstökum eyðublöðum, sem þar eru til afhendingar. Einnig er unnt að nálgast umsóknareyðublað
hér á heimasíðunni.