15. mars, 2004
Deildarfundur KEA í Út-Eyjafjarðardeild verður haldinn að Rimum í Svarfaðardal miðvikudaginn 24. mars kl. 20.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður umræðuefni fundarins framtíðarskipan sveitarfélaga í Eyjafirði. Ræddar verða hugmyndir um sameiningu sveitarfélaga við Eyjafjörð og gefin mynd af Deildarfundur KEA í Út-Eyjafjarðardeild verður haldinn að Rimum í Svarfaðardal miðvikudaginn 24. mars kl. 20.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður umræðuefni fundarins framtíðarskipan sveitarfélaga í Eyjafirði. Ræddar verða hugmyndir um sameiningu sveitarfélaga við Eyjafjörð og gefin mynd af reynslu af sameiningu þriggja sveitarfélaga við utanverðan Eyjafjörð.
Framsögumenn verða:
Dr. Grétar Þór Eyþórsson, framkvæmdastjóri Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri.
Framtíðarskipan sveitarfélaga við Eyjafjörð. Nokkrar hugleiðingar.
Valdimar Bragason, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð.
Reynslan af sameiningu þriggja sveitarfélaga við utanverðan Eyjafjörð. Hvað næst?
Stefanía Traustadóttir, bæjarstjóri í Ólafsfirði.
Hver er vilji Ólafsfirðinga í sameiningarmálum?
Nemendur í Tónlistarskóla Dalvíkur verða með tónlistaratriði.
Kaffiveitingar.
Fólk er hvatt til þess að fjölmenna á fundinn og fylgjast með og taka þátt í áhugaverðum umræðum.