19. mars, 2003
Kaupfélag Eyfirðinga svf. auglýsir hér með eftir styrkumsóknum úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins. Styrkúthlutun verður kynnt í tengslum við aðalfund KEA í lok apríl nk.
Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til þriggja þátta:
A. Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa seKaupfélag Eyfirðinga svf. auglýsir hér með eftir styrkumsóknum úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins. Styrkúthlutun verður kynnt í tengslum við aðalfund KEA í lok apríl nk.
Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til þriggja þátta:
A. Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og íþrótta og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu.
B. Ungra afreksmanna á sviði mennta, lista, íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök afrek t.d. á sviði björgunarmála. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.
C. Þátttökuverkefna á sviði menningarmála á félagssvæði KEA. Fagráð fjallar um umsóknir eða fyrirliggjandi hugmyndir samstarfsaðila og gerir tillögur til stjórnar um val á verkefnum.
Styrkir eru veittir tvisvar á ári úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA svf. annars vegar í tengslum við aðalfund félagsins að vori og hins vegar á tímabilinu október-desember.
Umsóknir um styrki og framlög úr sjóðnum skulu berast skrifstofu KEA að Hafnarstræti 91-95 á Akureyri á sérstökum eyðublöðum, sem þar eru til afhendingar. Einnig er unnt að nálgast umsóknareyðublað og fá allar upplýsingar um Menningar- og viðurkenningasjóð KEA svf. á heimasíðu KEA www.kea.is
Umsóknarfrestur er til 7. apríl 2003.