Kaupfélag Eyfirðinga svf. auglýsir eftir styrkumsóknum úr Menningar- og viðurkenningarsjóði félagsins. Styrkúthlutun verður kynnt fyrir jól.
Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til tveggja þátta.
A. Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA. UKaupfélag Eyfirðinga svf. auglýsir eftir styrkumsóknum úr Menningar- og viðurkenningarsjóði félagsins. Styrkúthlutun verður kynnt fyrir jól.
Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til tveggja þátta.
A. Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og íþrótta og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu.
B. Ungra afreksmanna á sviði mennta, lista, íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök afrek t.d. á sviði björgunarmála. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.
Styrkir eru nú veittir tvisvar á ári úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA svf.
Umsóknir um styrki og framlög úr sjóðnum skulu berast skrifstofu félagsins að Hafnarstræti 91-95 á Akureyri á sérstökum eyðublöðum, sem þar eru til afhendingar. Einnig er unnt að nálgast umsóknareyðublað hérna á
heimasíðu KEA og fá
allar upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 21. nóvember nk.