KEA auglýsir eftir styrkumsóknum úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins. Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til tveggja flokka:
- Til einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæðinu. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu.
- Til þátttökuverkefna á sviði menningarmála. Í flokki þátttökuverkefna er horft til stærri verkefna á sviði menningamála á félagssvæði KEA.
Fagráð fjallar um og gerir tillögur að úthlutun hverju sinni.
Umsóknarform má nálgast á heimasíðu KEA www.kea.is eða á skrifstofu félagsins og skal umsóknum skilað rafrænt eða á skrifstofu KEA, Glerárgötu 36 á Akureyri fyrir 15 október 2006.