27. október, 2004
Kaupfélag Eyfirðinga svf. auglýsir hér með eftir styrkumsóknum úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins. Styrkúthlutun verður kynnt fyrir jól.
Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til tveggja þátta:
A. Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæKaupfélag Eyfirðinga svf. auglýsir hér með eftir styrkumsóknum úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins. Styrkúthlutun verður kynnt fyrir jól.
Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til tveggja þátta:
A. Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og íþrótta og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu.
B. Ungra afreksmanna á sviði mennta, lista, íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök afrek t.d. á sviði björgunarmála. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.
Umsóknir um styrki og framlög úr sjóðnum skulu berast skrifstofu KEA að Hafnarstræti 91-95 á Akureyri á sérstökum eyðublöðum, sem þar eru til afhendingar. Einnig er unnt að nálgast umsóknareyðublað og fá allar upplýsingar um Menningar- og viðurkenningasjóð KEA svf. á heimasíðu KEA www.kea.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2004.