Auglýst eftir styrkjum úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA svf.

Kaupfélag Eyfirðinga svf. auglýsir hér með eftir styrkumsóknum úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins. Styrkúthlutun verður kynnt fyrir jól. Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til tveggja þátta: A. Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssKaupfélag Eyfirðinga svf. auglýsir hér með eftir styrkumsóknum úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins. Styrkúthlutun verður kynnt fyrir jól. Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til tveggja þátta: A. Málefna, einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og íþrótta og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu. B. Ungra afreksmanna á sviði mennta, lista, íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök afrek t.d. á sviði björgunarmála. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA. Umsóknir um styrki og framlög úr sjóðnum skulu berast skrifstofu KEA að Hafnarstræti 91-95 á Akureyri á sérstökum eyðublöðum, sem þar eru til afhendingar. Einnig er unnt að nálgast umsóknareyðublað og fá allar upplýsingar um Menningar- og viðurkenningasjóð KEA svf. á heimasíðu KEA – www.kea.is Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2004.