07. apríl, 2010
Aðalfundur KEA verður haldinn í Ketilhúsinu á Akureyri, fimmtudaginn 29. apríl kl. 20:00
Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Tillögur sem óskað er eftir að teknar séu til afgreiðslu
á fundinum skulu berast stjórn skriflega eigi síðar er sjö dögum fyrir aðalfund. Dagskrá og ársreikningur munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins viku fyrir aðalfund, þá verður einnig hægt að nálgast gögnin hér á heimasíðunni.