Verður haldinn miðvikudaginn 19. mars kl. 20:00 í Vaðlabergi á Hótel KEA.
Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum um störf deilda félagsins. Kjörnir verða fulltrúar til aðalfundar KEA sem áformað er að halda 22. apríl nk. Auk þess verða tveir aðalmenn í stjórn deildarinnar kosnir til 3ja ára, og deildarstjóri kosinn til þriggja ára ásamt varamönnum til eins árs.
Stjórn Akureyrardeildar tilkynnir í samræmi við samþykktir félagsins og samþykktir fyrir starfsemi félagsdeilda KEA við val á fulltrúum Akureyrardeildar á aðalfundi KEA, verður eftirfarandi verklag viðhaft:
• Notast verður við slembiúrtaki (tilviljunarúrtaki) við uppstillingu á tilnefningum deildarstjórnar á aðalfundarfulltrúum, sækist fleiri en 50 félagar eftir fundasæti.
• Röðun varamanna verður eftir sama slembiúrtaki.
• Við uppstillingu verður farið eftir jafnréttisstefnu KEA svf.
• Deildarfundur kýs um tilnefningu deildarstjórnar á aðalfundi deildarinnar.
Eru þeir félagsmenn Akureyrardeildar KEA sem vilja gefa kost á sér sem aðalfundarfulltrúar á aðalfund KEA, beðnir um að tilkynna það í síma 460 3400 (Ásdís) eða í tölvupóstfangið asdis@kea.is fyrir kl.12:00 mánudaginn 17. mars.