Fulltrúar þátttökuverkefna sem Menningar- og viðurkenningasjóður KEA styrkti að þessu sinni, ásamt stjórnendum KEA.
Í dag, laugardaginn 30. apríl, voru afhentir styrkir úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA. Að þessu sinni bárust alls 139 styrkumsóknir og hafa aldrei verið fleiri. Veittir voru alls 57 styrkir að upphæð samtals 13.365.00. Auglýst var eftir styrkjum úr A og B flokki, en einnig var auglýst eftir sÍ dag, laugardaginn 30. apríl, voru afhentir styrkir úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA. Að þessu sinni bárust alls 139 styrkumsóknir og hafa aldrei verið fleiri. Veittir voru alls 57 styrkir að upphæð samtals 13.365.00. Auglýst var eftir styrkjum úr A og B flokki, en einnig var auglýst eftir styrkjumsóknum í C flokk sem tekur til þátttökuverkefna skv. lið 4c. í samþykktum sjóðsins. Auk þess var auglýst eftir sérstökum íþróttastyrkumsóknum og voru fjórir slíkir styrkir veittir.
Almennur flokkur
Átján aðilar fengu úthlutað í flokki A, hver styrkur var að upphæð 120 þúsund en til úthlutunar í þessum flokki voru 2.160.000.
Þessir hlutu styrki:
Hljómsveitin Mór - vegna upptöku á geisladiski með íslenskum þjóðlögum.
Í fínu formi - Kór félags eldri borgara - vegna upptöku á geisladiski.
Kórastefna við Mývatn - vegna kóramóts.
Jón Hlöðver Áskelsson vegna útgáfu á lögum eftir hann við ljóð Þorgeirs Sveinbjarnarsonar.
Stúlknakór Húsavíkur - vegna þátttöku í kóramóti í Feneyjum.
Sverrir Páll Erlendsson - vegna rannsókna á samnýtingu síma, bloggs og tölva.
Arnfinna Björnsdóttir - vegna sýningar á acrylmyndum og klippimyndum.
Traustmynd - gerð sjónvarpsmyndar í tilefni fæðingarafmælis Davíðs Stefánssonar.
Kvenfélagasamband Suður-Þingeyinga - vegna varðveislu og viðhalds á Húsmæðraskólanum á Laugum í Reykjadal.
Stofnun Sigurðar Nordals - til að halda sagnaþing á Laugum í Reykjadal.
Samstarfshópur safna í Eyjafirði - vegna sameiginlegs átaks í kynningarmálum.
Saga Laugaskóla - vegna ritunar sögu Laugaskóla.
Mýrarmannfélagið - vegna útgáfu á Vesturheimsbréfum Jóns Jónssonar frá Mýri
Félag um Þjóðlagasetur á Siglufirði - til endurbóta á Þjóðlagasetri sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Íþróttafélagið Völsungur - vegna keppnis- og æfingaferða ungmenna til Svíþjóðar.
Skíðafélag Akureyrar - vegna keppnis- og æfingaferða afreksfólks.
Ungmennafélag Akureyrar - til eflingar starfsins.
Snow Magic Mývatn - vegna samstarfsverkefnis til stuðnings atvinnuuppbyggingar í Mývatnssveit.
Íþróttastyrkir
Til úthlutunar til íþróttastyrkja voru 2,9 milljónir króna - eftirfarandi hlutu styrki:
Nikulás, stuðningsmannafélag Leifturs í Ólafsfirði - til að halda knattspyrnumót - kr. 300 þúsund.
Hestamannafélagið Léttir - vegna byggingar reiðhallar - 2 milljónir króna.
Sundfélagið Óðinn - vegna aldursflokkameistaramóts í sundi - kr. 300 þúsund.
Unglingaráð Þórs í knattspyrnu - til að halda knattspyrnumót - kr. 300 þúsund.
Ungir afreksmenn
Í flokknum ungir afreksmenn voru veittir styrkir samtals kr. 3.605.000.
Eftirfarandi hlutu 200 þúsund króna styrki hver:
Þorsteinn Ingason - vegna æfinga og keppni á vetrarólympíuleikum æskunnar og heimsmeistaramóti unglinga í skíðaíþróttum.
Sunna Sævarsdóttir - vegna æfinga og keppni með unglingalandsliði Íslands í golfi.
Hafdís Sigurðardóttir - vegna æfinga og keppni í frjálsum íþróttum
Ari Jóhann Júlíusson - vegna æfinga og keppni í frjálsum íþróttum.
Guðjón Páll Sigurðarson - vegna æfinga og keppni í frjálsum íþróttum.
Heiðrún Sigurðardóttir - vegna æfinga og keppni í fitness.
Þorgerður Kristín Jónsdóttir - vegna þriggja mánaða náms við Circomedia-skólann í Bristol á Englandi.
Lára Sóley Jóhannsdóttir - vegna náms til BMus (hons) gráðu við Royal Welsh College of Music and Drama í Cardiff.
Ragnar Snær Njálsson - vegna æfinga og keppni með unglingalandsliðum Íslands í handknattleik.
Andri Snær Stefánsson - vegna æfinga og keppni með unglingalandsliðum Íslands í handknattleik.
Baldur Sigurðsson - vegna æfinga og keppni með unglingalandsliði Íslands í knattspyrnu.
Hallgrímur Jónasson - vegna æfinga og keppni með unglingalandsliði Íslands í knattspyrnu.
Viktor Helgi Hjartarson - vegna þátttöku í alþjóðlegum snjóbrettakeppnum og gerðar DVD-myndbands fyrir Team Divine hópinn.
Guðlaugur Hólm Guðmundsson - vegna þátttöku í alþjóðlegum snjóbrettakeppnum og gerðar DVD-myndbands fyrir Team Divine hópinn.
Eiríkur Helgason - vegna þátttöku í alþjóðlegum snjóbrettakeppnum og gerðar DVD-myndbands fyrir Team Divine hópinn.
Eftirtaldir hlutu styrki að upphæð 55 þúsund kr. hver:
Björn Már Jakobsson - vegna æfinga og keppni með landsliðum Íslands í íshokkíi.
Jón Benedikt Gíslason - vegna æfinga og keppni með landsliðum Íslands í íshokkíi.
Birna Baldursdóttir - vegna æfinga og keppni með landsliðum Íslands í íshokkíi og blaki.
Anna Sonja Ágústsdóttir - vegna æfinga og keppni með landsliði Íslands í íshokkíi.
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir - vegna æfinga og keppni með landsliði Íslands í íshokkíi.
Jóhanna Sigurbjörg Ólafsdóttir - vegna æfinga og keppni með landsliði Íslands í íshokkíi.
Vigdís Aradóttir - vegna æfinga og keppni með landsliði Íslands í íshokkíi.
Jónína Margrét Guðbjartsdóttir - vegna æfinga og keppni með landsliði Íslands í íshokkíi.
Patricia Huld Ryan - vegna æfinga og keppni með landsliði Íslands í íshokkíi.
Brynja Vignisdóttir - vegna æfinga og keppni með landsliði Íslands í íshokkíi.
Sólveig Gærdbo Smáradóttir - vegna æfinga og keppni með landsliði Íslands í íshokkíi.
Þátttökuverkefni
Alls voru veittir 9 styrkir til þátttökuverkefna, samtals samtals að upphæð 4,7 milljónir króna. Eftirtaldir hlutu styrki:
Fuglasafn Sigurgeirs ehf. í Mývatnssveit - vegna uppbyggingar safnsins - kr. 500.000.
Örn Ingi/Arnarauga - til reksturs fjöllistaskóla kr. 400.000.
Bjálkinn ehf., - samvinnuverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu o.fl. kr 300.000.
Eyjafjarðarsveit - vegna reksturs Tónlistarhússins Laugarborgar - kr. 300.000.
Listasumar 2005 - vegna árlegra listviðburða á Akureyri - kr. 750.000.
Vinir Wathnehússins - til björgunar hússins - kr. 750.000.
Safnasafnið - vegna flutnings hússins Gömlu búðar til safnsins - kr. 1 milljón.
Minjasafnið á Akureyri - vegna fornleifarannsókna á Gáseyri - kr. 500.000.
Ásgeir Jónsson - til að gefa út ljóðmæli Jóns Arasonar, biskups - kr. 200.000.