Nýir starfsmenn

Ásta Guðný Kristjánsdóttir og Halldór Jóhannsson, sem áður störfuðu hjá Kaldbaki hf., hafa verið ráðin til starfa hjá Kaupfélagi Eyfirðinga svf. og munu þau hefja störf fljótlega. Ásta Guðný verður aðstoðarmaður framkvæmdastjóra en Halldór gegnir starfi fjárfestingarstjóra KEA. Ásta GuðnýÁsta Guðný Kristjánsdóttir og Halldór Jóhannsson, sem áður störfuðu hjá Kaldbaki hf., hafa verið ráðin til starfa hjá Kaupfélagi Eyfirðinga svf. og munu þau hefja störf fljótlega. Ásta Guðný verður aðstoðarmaður framkvæmdastjóra en Halldór gegnir starfi fjárfestingarstjóra KEA. Ásta Guðný Kristjánsdóttir útskrifaðist af læknaritarabraut Ármúlaskóla árið 1999. Ásta Guðný hefur eins og áður segir starfað hjá Kaldbaki hf., þar sem hún var aðstoðarmaður framkvæmdastjóra. Áður starfaði hún um nokkurra ára skeið á barnadeild FSA. Halldór Jóhannson er viðskiptafræðingur að mennt af endurskoðunarsviði HÍ. Hann gegndi stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra hjá Kaldbaki hf., en áður starfaði hann hjá KEA og þar áður hjá Landsbanka Íslands við fjármögnun, fjárfestingar og samrunaráðgjöf.