08. júní, 2005
Sparisjóður Svarfdæla og Kaupfélag Eyfirðinga hafa ákveðið að hafa, í samstarfi við Dalvíkurbyggð, forystu um stofnun menningar- og náttúrufræðaseturs á Húsabakka í Svarfaðardal. Verið er að skipa starfshóp þessara aðila til að fylgja verkefninu eftir. Rekstur setursins verður í höndum sérstaks félaSparisjóður Svarfdæla og Kaupfélag Eyfirðinga hafa ákveðið að hafa, í samstarfi við Dalvíkurbyggð, forystu um stofnun menningar- og náttúrufræðaseturs á Húsabakka í Svarfaðardal. Verið er að skipa starfshóp þessara aðila til að fylgja verkefninu eftir. Rekstur setursins verður í höndum sérstaks félags.
Á Húsabakka verður komið upp náttúrufræðastofu í minningu Hjartar E. Þórarinssonar á Tjörn, fyrrum stjórnarformanns KEA og stjórnarmanns í Sparisjóði Svarfdæla. Náttúrufræðastofan verði tengd Friðlandi Svarfdæla en Hjörtur hafði frumkvæði að stofnun þess á sínum tíma. Sérstök áhersla verði á plöntu- og fuglalíf.
Útbúin verði íbúð fyrir lista- og fræðimenn á Húsabakka. Til ráðgjafar um menningarstarfsemi á Húsabakka verður myndaður hópur landsþekktra rithöfunda, leikara og tónlistarfólks sem tengist svæðinu með einum eða öðrum hætti.
Hugmyndir um starfsemi á Húsabakka eru sem hér segir:
1. Yfir sumarið verði starfsemin í líkum dúr og hefur verið. Áhersla verður lögð á að laða að útivistar- og fjallgöngufólk í samvinnu við aðra þá sem vinna að slíkum málum á svæðinu. Skóli Bandalags íslenskra leikfélag fær áfram aðstöðu að Húsabakka sem og masterklassnámskeið í söng. Reynt verði að auka slíka menningarstarfsemi.
2. Haust og vor verði starfrækt skólasetur þar sem skólum á starfssvæði KEA verði boðið að senda tiltekna bekki til umhverfis- og náttúrufræðslu. Auk þess verði kynning á atvinnulífi til sjávar og sveita, á samvinnustarfsemi og starfsemi sparisjóða.
3. Yfir veturinn verði boðið upp á námskeið um menningartengt efni, gjarnan í tengslum við þá listamenn sem dvelja að Húsabakka. Sérstök heilsutengd námskeið þar sem fólk kæmi til að hlú að heilsu sinni með mataræði og útivist.