20. maí, 2005
Á fundi stjórnar KEA í gær, 19. maí, var samþykkt eftirfarandi ályktun:
Stjórn KEA lýsir vilja til að taka þátt í samstarfi um undirbúning að uppbyggingu stóriðju á Norðurlandi. Stjórn KEA áréttar mikilvægi samstarfs á milli byggðarlaga varðandi staðarval. Stjórnin bendir á mikilvægi þess að bÁ fundi stjórnar KEA í gær, 19. maí, var samþykkt eftirfarandi ályktun:
Stjórn KEA lýsir vilja til að taka þátt í samstarfi um undirbúning að uppbyggingu stóriðju á Norðurlandi. Stjórn KEA áréttar mikilvægi samstarfs á milli byggðarlaga varðandi staðarval. Stjórnin bendir á mikilvægi þess að bæta samgöngur á Norðausturlandi þannig að stærri atvinnusvæði njóti ávinnings af atvinnuuppbyggingu og hvetur til þess að framkvæmdir verði hafnar við gerð Vaðlaheiðarganga.